Sæunn Stefánsdóttir

Framsókn er lögð af stað Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 21. janúar 2009

Glæsilegt flokksþing okkar Framsóknarmanna er að baki. Ég leyni því ekki að auðvitað hefði ég viljað vinna kosningar um ritaraembættið enda hefði ég annars ekki gefið kost á mér. En ég er stolt af Framsókn fyrir þetta glæsilega þing, þær merkilegu ályktanir sem þar voru samþykktar t.d. um Evrópumál og stjórnlagaþing, og ég er stolt af fólkinu okkar, kraftinum, bjartsýninni og samhugnum sem það býr yfir.

Ég þakka innilega fyrir alla þá hlýju og stuðning sem ég hef fundið fyrir.

Framsókn stendur á tímamótum rétt eins og Íslendingar allir. Aldrei í seinni tíma sögu þjóðarinnar verða gerðar þær kröfur til stjórnmálamanna og flokka sem gerðar verða á næstu árum til okkar. Þess vegna þurfum við breytingar - þess vegna þurfum við að hugsa hlutverk stjórnmálamannsins og flokksins upp á nýtt. Framsókn er lögð af stað í þennan leiðangur en aðrir virðast daufheyrast.